Hvað færðu út úr deginum?
Fræðsla
Dýrmæt fræðsla og skýr sýn frá innlendum og erlendum sérfræðingum á heimsmælikvarða. Raunveruleg dæmi og reynslusögur sem hægt er að yfirfæra beint í eigið starf.
Innblástur
Fáðu innblástur til að taka næsta skref í stafrænni umbreytingu. Haustráðstefna Advania er ekki aðeins ráðstefna - hún er árlegur samkomustaður þeirra sem vilja vera skrefi á undan í tækni, rekstri og forystu.
Tengsl
Tækifæri til tengslamyndunar við lykilaðila í íslensku atvinnulífi í faglegu og lifandi umhverfi í Hörpu. Spennandi dagskrá, góð stemning og veitingar - því heildarupplifunin skiptir máli!
Ráðstefnudagur
• Fimmtudaginn 10. september 2026 í Hörpu.
• Lykilræður og kynningar allan daginn.
• Léttur hádegisverður og drykkir að viðburði loknum.
• Upptökur aðgengilegar að ráðstefnu lokinni
39.500kr. m/vsk.
Ef þú hefur spurningar sendu okkur endilega línu á radstefna@advania.is